A R C T I C  T R A C K

Arctic Track er leiðandi fyrirtæki í flotastýringu og hefur lausnin þjónað hópi viðskiptavina allt frá árinu 2012.

Arctic Track hefur skýra framtíðarsýn um notkun og þróun á lausninni og býr yfir áralangri reynslu af rekstri flotastýringar, ökurita og annarri tengdri þjónustu.

Sem fyrirtæki leggjum við ríka áherslu á góða þjónustu og hátt þjónustustig. Eins lítum við til framtíðar og erum alltaf að horfa á leiðir áframhaldandi þróunar lausnarinnar sem nýtist viðskiptavinum flotastjóra AT.

Flotastjóri AT sameinar fjölda aðgerða sem gera rekstur ökutækja hagkvæmari og auðveldari. Með Flotastjóra AT færðu fullkomna yfirsýn yfir staðsetningu ökutækja í rauntíma auk þess að geta vaktað og verið með yfirlit yfir allan viðhaldskostnað á einum stað. Flotastjóri AT hentar öllum stærðum og gerðum fyrirtækja og getur tengst öðrum viðskiptahugbúnaði og upplýsingakerfum viðskiptavinar ef slíkur búnaður og kerfi eru opin fyrir því.

Við setjum viðskiptavini okkar ávallt í fyrsta sæti og erum sannfærð um að þær lausnir sem við höfum upp á að bjóða einfaldi líf okkar viðskiptavina við stýringu síns flota og bjóði upp á betri yfirsýn og aukna hagkvæmni í rekstri.

Þinn hagur eru okkar markmið.

Hafsteinn - CEO

hafsteinn@at.is

s. 861 5222

Andri - CFO/COO

andri@at.is

s. 861 6222